The main pearls ;)

~EÐALPERLURNAR~

27.01.2006 19:58:04 / perla2

Bless

Ég held að þessi síða sé bara útrunnin nenni ekki að vera eina sem bloggar hér .. Takk fyrir mig.

Inga.


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 21:42:59 / perla4

úrsögn!!

sry stelpur eg segji mig ur þessu! nenni ekki að skrifa her lengur... verð afram a blog.central.is/beachstreet     sry !
-Rakel perla 4 ...

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 21:52:26 / perla2

Hitt og þetta..*;)

hæjj hæjj..

Langt síðan ég bloggaði eða bara VIÐ ... !! halló stelpur hvar eru þið..!!

En allavegana þá er ég bara á fullu´í skólanum og alltaf ógeðslega þreytt seinnipart dags.. verð að fara taka vítamín eða eithvað..  en samt er alltaf mjög gaman í skólanum .. ;) við stelpurnar í snyrtifræðinni erum farnar að kynnast betur og munum kynnast enn betur þegar fer að líða á .. :)

Það sem ég er að fara eyða frí helginni minni í er að flytja.. ja ég er að fara flytja núna á næstu helgi og ætla sem sagt að sofa fyrstu nóttina mína á laugardaginn;) hlakka mjög mikið til.. hlakka samt ekki til að þrífa herbergið sem ég er að fara úr.. en verð samt að gera það.. en þá þarf ég ekki lengur að keyra þennan einbreiðaveg í skólann og vera klikkað lengi á leiðinni útaf klikkaðri umferð og öllu því.. heldur verð ég enga stund ... man ekki hvort ég var búin að segja frá því en þá er ég að flytja í íbúð rétt hja Kringlunni , get labbað í kringluna og svo erum ég og Ásrún að fara verða nágrannar:) hún á heima í götunni fyrir neðan mig ..:) mjög skemmtilegt:) og þá get ég líka farið í baðhúsið og fengið kasski Ásrúnu til að koma með mér þangað :)hehe..:) en hmm .. það er annars ekkert mikið að ske hjá mer annað en skólinn og flutningar.. man ekki eftir meiru til að segja frá.. endilega skrifið í gestabókina hja okkur:)

kv.Inga..


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 19:27:43 / perla2

smá blogg..

Ef þið vilduð vera svo góð að svara þessum spruningum;)

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
 

jæja ég nenni valla að blogga .. fór frekar seint að sofa fór svo að vinna í morgun og er frekar þreytt núna.. ég held ég verði að leggja mig aðeins.. hef eilega ekkert að segja svo ég læt þetta duga bara:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2006 21:48:22 / perla2

JANÚAR;)

hæjjhæjj Núna er komin 11 janúar.. Rakel elskan átti ammæli í gær og nú er hún orðin 19 ára konan;) til hamingju með það sæta mín ;):* en skólinn er byjraður og VÁ hvað mér lýst geggjað vel á þetta hlakka svo til að byrja á fullu í þessu námi ;) en núna er sem sagt bara fyrsta vikan og það er bara verið að kynna fögin og láta okkur fá námsáætlun og svona spennandi.. en ég þurfti bara að kaupa 1 bók sem var ekkert svo dýr.. og svo bara svona lítil hefti, en samt er ég eftir að borga búninginn eða mmm veit ekki alveg hvað ég á að kalla þetta... nærrum einsog hjúkku búningur nema bara fyrir snyrtifræði og svo er það pennslasettið sem við erum eftir að fá og borga líka.. svo erum við að fara í vettvangsferð í næstu viku á snyrtistofu og sem sagt eithverja heildsölu sem við fáum að kaupa krem og þessháttar.. en ég hef tekið þá ákvörðun að flytja og mun ég flytja um næstu mánaðamót svo nú er bara að fara pakka öllu dótinu mínu niður ;) sem er ekkert mál því ég er nú ekki með það mikið af húsgögnum aðalega bara föt og þannig..;) ég keypti mer kort í sporthúsinu og ÆTLA að vera dugleg að fara eftir skóla í ræktina;) en vá það er svo klikkað skrítið að vera ekkert að vinna lengur og að mæta kl átta í skólan , það er mjög erfitt að vakkna það er mjög langt síðan ég þurfti að vakkna svona snemma það er alveg ár síðan... ég er búin að vera vön að vakkna núna meðan ég var að vinna kl 9.30 og stundum seinna þannig að ;) en þetta vennst allt :) en ég legg til að við verðum duglegri að blogga hér stelpur;) ætlaði bara að segja nokkur orð og láta vita að ég sé á lífi svo þetta verður ekki lengra í kvöld:) Kveðja Inga Rut ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 18:26:15 / perla1

Halló halló, allt að ske

Ég að blogga :) Arna hér...

Helst í fréttum er það hjá mér er :

  • Það er komið nýtt ár
  • Skólinn byrjar á fimmtudag/föstudag
  • Ég er allltooof löt ! Komst uppá þann vana í jólafríinu að sofa of mikið á daginn ... oftar en ekki minna á nóttinni ! ekkert sniðugt
  • Mig hlakkar til að byrja í skólanum
  • Það snjóar og snjóar og snjóar úti
  • Svo kemur rigning og það rignir og rignir og rignir
  • Svo snjóar aftur og svo verður allt autt 
  • Ég er að fara suður núna fljótlega ! vá það verður gaman og djammað
  • Nágrannar í gangi , allt að gerast, Karl að fá hjartaáfall
  • Er ekki búin að sjá glæstar í of langan tíma
  • vörutalning í hamró í fyrramálið ...jeeeij
  • Búið að panta utanlandsferðina okkar ! vá ég er spennt!

bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 22:15:15 / perla4

jæja fólk

koma svo allir að mæta í krúsina í kvöld!!!;)
-Rakel

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.12.2005 14:54:39 / perla2

síðasta bloggið á þessu ári ;)

hæjjjj;)

Jæja best að blogga síðasta bloggið á árinu ;) en djammið annan í jólum var nú alveg ágætt nema ég var nú alveg ágætlega mikið í því og ég er ekkert á því að drekka á næstuni;) skemmti mér mjög vel heima hja Thelmu klikka ekki partyin hja henni ;) svo var farið með Dagný út í hnífstal ég,Arna og Ásdís fengum skuttl;) við gleimdum Rakel eða hún sagðist ætla aðseins seinna en ákvað svo að koma með okkur svo þegar hún kom út vorum við farnar:S en ja svo þegar komið var út í hnífastal tíndi maður öllum og var endalaust að leita af fólkinu.. en svo eftir ball fór eg bara heim..;)  en svo daginn eftir guð þa var ég dauð bara mér leið svo klikkað illa að sá dagur var nú bara ónýtur hehe en svo þegar listin var komin þa fórum ég og Rakel að kaupa okkur pizzu mmm.... en jamm svo er bara búið að vera rólegheit á manni  bara slaka á heima og kíkja rúnnt og sonna..;) mjög rólegt á þæginlegt.;) svo í kvöld þá er matur hérna heima og amma kemur í mat svo förum við á brennuna og til Gunnu og Einars svo er farið heim og skotið upp ;) og svo liggur leiðin í party :) og væntanlega á krúsina eða eithvað þannig :haha:og þar með líkur árinu 2005 og 2006 tekur við og ég vona að það verði bara alveg yndislegt ár og gangi bara vel :) hlakka allvegana mjög til ársins 2006:)  en það stittist í að ég fari aftur í borgina.. ég á flug 2 janúar og þa liggur leiðin beynt í vinnu og svo 4 jan þá á ég að sækja stundatöfluna uppi fb;) og skólinn byrjar 9 janúar:) en ég vil bara þakka öllum fyrir árið sem er að líða og ég hlakka bara til að hitta ykkur á næsta ári ;) Takk fyrir mig:);)(K)

ps: ég legg til að stelpurnar bloggi núna næstu blogg;) og að fólk skrifi í gestabókina ..


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 19:25:02 / perla2

Ég elska jólin;)

Ég ætla að byrja þetta blogg á því að óska öllum gleðilegra jóla og ég vona að þið hafið það bara gott yfir hátiðirnar:) en ég kom heim 23 og sem betur fer breytti eg fluginu mínu á 23 því ég átti nebla flug 24 þannig að eg hefði getað verið veðurteft yfir jólin í rvk en glatað en sem betur fer þá fékk ég frí til að fara í flug 23 des:):) takk Gréta fyrir það ;) en það vaqr æðislegt að koma heim ;) elska heimilið mitt;) þegar ég kom vestur þá fór ég bara beint heim og að spjalla við fjölskilduna og sonna taka uppúr töskum og ganga frá í skápinn og sonna geggjað gott að koma í gamla herbergið ;) sakkna þess smá að búa heima ::) en svo fór ég smá að vesenast með mömmu og Örnu systur í bæinn.... svo vildi pabbi endilega að ég kæmi með í skötu til ömmu ég var ekki alveg að meika það en lét mig hafa það :) og borðaði bara hangikjöt sem var ágætt... en eftir það fór ég heim að skipta um föt og tók svo ´rúnnt með pabba á nýja bílnum ;) fór svo og kíkti á stelpurnar í vinnuna:) fór svo heim að klára pakka inn gjöfum.. en eftir það sótti ég Rakel elskuna mína sem var æði því það var svo langt ´síðan við' hottumst svo það var spjallað mikið, svo kíkti Arna með okkur þegar hún var búin að vinna mjög gaman að hitta hana líka:) svo kíktum við aðeins á krúsina og rúnnntuðum meira...En dagurinn í gær var æði. það sem eg var reyndar ekki sátt við var að það vanntaði allan snjó J'OLA snjóinn:klikk: bara eikkur brjáluð hálka og læti.. en þa'ð verður að hafa það .. en ég var mjög ánægð með gjafirnar´mínar.. fékk ryksugu,ristavél,king size sæng, geysladiska,bók sagan af pabba eftir Thelmu mjög sátt við að fá þessa bók.. þar sem ég var að vinna með þessari æðislegu manneskju hún er svo lífsglöð og er alltaf hlægjandi og kemur manni alltaf til að hlægja eða í gott skap ;);) en svo fékk ég bol,spöng, eyrnalokka,ylvatn,gjafakort í smáralind,peninga, snyrtibuddu og eithvað fl.. vá b´róðir minn er svo mikil snild.. hann gaf mer jónsa diksinn en pakkinn var ekkert smá stór og guð þetta var svo findið hann gerði þetta alveg sjálfur og hann var búinn að skreyta pakkann á allt öðruvísi hátt en maður er vanur að sja .. þetta var algjör snild og svo opnaði eg þa var þetta kassi og í kassanum var fullt af drasli úr geymslunni teppi bækur blöð og fl mjög findið sko og bangsi sem eg átti svo loksins á botninum var diskurinn þið sem vitið ekki hvernig jónsa diskurinn er þa er hann örþunnur ekki í svona hörðu hulstri heldur bara úr pappa.. þetta var mjög skemmtilegt allavegana;). en svo er nú ekki búið að gera mikið nema að liggja í leiti lesa bókina og horfa á dvd í nýja heimabíóinu og sjónvarpinu okkar vá þetta ernottla bara geggjun sko..allt annað að horfa á mynd í þessu tæki sko.. og hljómurinn vá ....þannig að gamla sjónvarpið er komið inn í mitt herbergi og sjónvarpskápurinn..;) mjög þæginlegt:) en guð eg er endalaust södd maður borðar og borðar.. úff held það sé átak eftir áramótin.. en svo er bara djamm á morgun ;) ég er ekki búin að detta í það síðan í október svo það er komin tími til ;) hlakka svo til ;) en ég skrifa vonandi fljótt aftur;) læt vita hvernig djammið fór og sonna:);)

» 4 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 14:49:28 / perla4

ég hlakka svo til...

ég hlakka alltaf svo til...
vildi að mar væri lítill ennþá, þá var mar alltaf svo spenntur og óþolinmóður á aðfangadag. vaknaði snemma horfði a barnatimann, fór í bað og keyrði út kort og gjafir og þannig. í dag svaf ég til hádegis, snæddi svo mat með fjöldskyldunni, og vissi svo ekkert hvað ég átti að gera. keyrði jú út tvo pakka, búið. og er í tölvunni núna..
á bara eftir að fara í bað og eg er tilbuin fyrir jólin.
hlakka samt til að fá hamborgarahrygginn og ísinn..mmmm...
er með "jólalagið" jólastelpa á heilanum, geggjað heh.. en ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og hafið það bara ótrúlega gott! sjáumst á 2íjólum djamminu..?
-Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 13:08:09 / perla2

JÓLIN ;)

hæjjhæjj vá það er mjög langt síðan eg bloggaði hérna.. enda langt síðan ég ´komst í tölvuna mína.. EN loksins er ég ekki að vinna..og sit hér að slaka á er að fara í klippingu kl 14.00 og svo í negglur og fótsnyrtingu og fl kl 17:00 þannig að þetta er sko dekur dagur hja mer.. enda er ég búin að vera vinna til 22:00 undanfrarna daga..:S og það er sko brjálað að gera.. búin að vera veikindi í vinnuni þannig að það hefur vanntað fólk.. ég vissi ekki að þetta væri svona mikið brjálæði fyrir jólin.. úff..fólk er alveg að missa sig í því að versla;) en ég hlakka til að ´fa útborgað það verður örugglega mjög mikið..;);) en ég náði prófunum mínum og er alveg klikkað ánægð með það.. kennarinn minn hringdi í fyrradag og sagði mér að ég væri komin inn  á snyrtifræðina :) og ég var svo ógeðslega ánægð :) og hlakka bara til að byrja í þessu námi eftir áramót..:) en ég er búin að kaupa allar  jólagjafir en á eftir að pakka þeim öllum inn sem er vesen ... hef ekkert tíma til þess... svo er ég eftir að pakka niður .. amma er reyndar að þvo fullt af þvotti fyrir mig .. því eg er nottla aldrei heima til þess að gera það ;) hún er svo góð að gera þetta fyrir mig núna ;) þannig að ætli eg pakki ekki niður í nótt eða eikkað .. hehe..  hlakka svo ótrúlega mikið að koma heim loksins.. get ekki beðið .. og það verður sko djammað öll jólin.., og áramótin líka ;) en mamma og pabbi komu í bæinn á síðustu helgi.. og það var æðislegt að hitta þau var farin að sakkna þeirra svo mikið.. en ég nottla hitti þau ekki mikið því ég var að vinna alla helgina.. ja ég sá nýja bílin sem þau voru að kaupa og vá hann er geggjað flottur .. hlakka til að fá að rúnnta á honum ;) en við sjáumst elskurnar á föstudaginn ;) hlakka óendanlega mikið til :):)

kv Inga Rut..:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 00:21:20 / perla1

Armageddon ...

Vá langt síðan ég sá hana, hún birtist mér á afgreiðsluborðinu í Hamraborg áðan og ég sá mig tilneydda til að leigja mér hana , auk þess sem mér datt allt í einu í hug að leita uppi Save the last dance í tölvunni, þannig að núna sit ég , nýkomin heim og er að njóta mín yfir Armageddon, var að vinna í kvöld, fer að vinna í Frystihúsinu í fyrramálið , jeeeeij það verður nú gaman ?

En ég ætla bara að hafa þetta stutt:) Sorry að ég bloggi sjaldan , en mér finnst svo gaman að uppgötva nýtt og nýtt á blogspot síðunni minni að ég gleymi þessari svona stundum soldið mikið ....;) Ætla að fara að bæta mig í því ....

Annars blogga ég daglega á http://arnamaria.blogspot.com 

Arnan kveður ...Armageddon bíðu...ÓMG end of ðe wörld skiluruu ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 09:44:45 / perla4

úrslit...

42atkvæði greidd!

hvernig væri að inga kæmi með næstu könnun?;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 23:59:42 / perla1

Lærilærilæri

Er í gamla apótekinu að læra:) Duglega Arna:D Erum hérna Hamraborga-crewið, ég, Bigga, Ásthildur, Birna og Helga Lind, allar voðalega duglegar að læra í ÍSL303 :) Ætlum sko að meikaða í prófinu á morgun , erum hérna með birgðir af Magic, notabene þá hef ég aldrei á ævinni smakkað magic, bragðast ágætlega, svo er hérna á borðum hlaðborð af nammi og orkudrykkjum, orka og powerade og meira og meira:) nóg af þessu , :) Erum ákkúrat núna að ræða húskarlavígin, og rifja upp skemmtilega tíma með Gunnar Þorra og Hallgrími. Voðalega gaman, verið duglegar að bloggga stelpur:D ! Minni svo á mína sóló síðu http://arnamaria.blogspot.com :D Bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 21:46:01 / perla4

ég veit það ekki...

ja helgin búin og við tekin enn ein skólavikan... tvær vikur eftir svo loksins frí! eða vinna eða eikkað... allavega jól og góður matur:) var edrú síðustu helgi, er að spara mig fyrir jóla djammið og áramótin;)
fór á árshátíð MA á fimmtudaginn, ekkert smá góður matur sem við fengum. var með útsprengdan maga allt kvöldið.. mjög smart:) skaupið var alveg að gera sig sem og minni karla og kvenna. svo eftir matinn og skemmtiatriðin var ball með pál óskar, en ég hef litla þolinmæði í að vera í kjól og háum hælum og var orðin frekar þreytt eftir allar myndatökurnar þannig ég beilaði bara og fór heim ásamt svövu og eydisi..:p
á föstudaginn slappaði ég bara af og horfði á idolið með eyberg, fórum reyndar líka í bío kl 12 á saw 2 ! þetta er ógeðsleg mynd, ég get ekki sagt að ég hafi verið beint hrædd mér bara fannst hún ótrúlega sjúk! en jæja þetta er það sem fólk hefur gaman af í dag víst. en horfði svo a saw 1 á laugardaginn, hafði ekki séð hana áður, mér fannst eilega númer 2 ógeðslegri.. þó fyrri hafi verið betri. svo gerði ég ekkert á laugardaginn nema liggja í leti. sem var mjög næs. á sunnudaginn urðum ég svava og sunna ungar á ný og fórum út og renndum okkur 4 ferðir eða svo á ruslapokum í einhverri brekku. ekki spurja afhverju, ekki mín hugmynd. en það var samt bara gaman:) annaz er ekkert að frétta af mér eilega,er bara í skóla og ræktinni og e-ð rugl..:) farin að hlakka til jólanna? ég er komin í smá fíling... :)
en jæja bless..
-Rakel

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11